Uppskriftin kemur frá tengdamömmu en hún gerir þessa böku gjarnan og setur á matarborðið á Shabbat. Við fjölskyldan borðum þessa böku yfirleitt sem aðalrétt hér heima enda saðsöm og frábært að bera hana fram með matarmiklu salati. Bakan er ljúffeng hvort sem er heit eða köld.


Uppskriftin dugar fyrir 4 sem aðalréttur en mun fleiri auðvitað sem meðlæti.


Glúteinlaus grænmetisbaka tengdamömmu:
4-5 bökunarkartöflur 
5 egg
1 msk Sætkartöflukrydd Kryddhússins
1/2 tsk Túrmerik Kryddhússins1 dós blandað grænmeti (450g)
lúkufylli af grófskorinni steinselju
salt og pipar 


Sjóðið kartöflurnar. HItið ofninn í 160C. Afhýðið kartöflurnar og stappið (betra að gera það á meðan þær eru heitar). Gott að setja í hrærivélaskál, brjóta eggin út í og hræra aðeins saman þannig að eggin blandist vel saman við. Setjið kryddið út í og að lokum blandið grænmetinu úr dósinni og steinseljunni varlega saman við með sleif.


Setjið eins og 3-4 msk af olíu í eldfast mót (við notuðum 10×22 cm mót) og setjið inn í heitann ofninn í smá stund til að hita olíuna. Takið mótið út og veltið því á alla kanta þannig að olían renni vel út í mótið. Hellið hrærunni í mótið og bakið í u.þ.b. 45-50 mín eða þar til yfirborðið er orðið gullinbrúnt.


Matarmikið salat með Sumac og heslihnetum:
græn salatblanda
rifnar gulrætur
rifin pera
grófsaxaðar heslihnetur
Sumac frá Kryddhúsinu 
salt eftir smekk 


salatdressing:
1 tsk balsamic vineger
u.þ.b. 1/2 dl kaldpressuð ólífuolía
1 msk hunang (má sleppa þar sem peran í salatinu er sæt)
heslihnetur grófskornar og Sumac (krydd frá Kryddhúsinu, sumac eru ber sem eru þurrkuð og mulin)
örlítið af sjávarsalti eða Himalayan salti

Stráið Sumac yfir salatið og saltið aðeins. Blandið vel saman. Hellið dressingunni yfir salatið og fallegt að strá heslihnetunum yfir allt að lokum.
add_action( 'woocommerce_after_shop_loop_item', 'woocommerce_template_loop_add_to_cart', 20 );