Allrahanda malað 45gr

599 kr.

Innihald: möluð allrahanda ber.

Allrahanda er einnig þekkt m.a. undir nöfnunum “English pepper” og “Jamaican pepper”. Bretar nefndu þetta krydd “Allspice” þar sem þeim þótti bragðið vera blanda af kryddi eins og kanil, múskat og negulnöglum. Allrahanda eru tínd þegar þau eru græn og óþroskuð ber. Þau eru þurrkuð í sólinni og verða við það brún á litinn og minna þá helst á piparkorn. Þau ilma dásamlega og gefa mjúkt, náttúrulega sætt og aromatískt bragð í allan mat og bakstur.

Allrahanda er uppistaðan í karabískri matseld og í  Norður-Ameríku er allrahanda mikið notuð í eftirrétti og bakstur. Pylsugerðarmenn í Þýskalandi bragðbæta pylsurnar gjarnan með þessu skemmtilega kryddi auk þess sem það er mikilvægt innihaldsefni í grillsósum svo eitthvað sé nefnt.

Kryddið er Vegan, án aukaefna, án MSG, án glúteins, án sílikon díoxíðs, án salts.

add_action( 'woocommerce_after_shop_loop_item', 'woocommerce_template_loop_add_to_cart', 20 );