Jólaglöggskryddblanda 60g

959 kr.

Innihald: Kanill, allrahanda, negulnaglar, appeslínubörkur, kardamommur, grænn-, hvítur- og svartur pipar, rósapipar, stjörnuanís, náttúrulegt bragðefni.

Þessi kryddblanda færir þér ilm jólanna! Dásamleg kryddblanda í áfengt eða óáfengt glögg. Blandan er einnig tilvalin til að sjóða niður í sykurvatni sem sýróp sem svo er notað út á t.d. hátíðareftirréttinn eða áramótakokteilinn. Sjá uppskrift í flokknum „uppskriftir“ og undirflokkinum „Jól“

Áfengt glögg: 2 1/2 msk kryddblanda, 750ml léttvín, u.þ.b. 1.5 dl sykur (eða hunang/önnur sæta) (ath að sætumagnið fer eftir sýrustiginu í víninu sem notað er, þannig að stundum þarf minni sætu eða meiri), sett í pott og hitað að suðumarki. Tekið af hellunni og látið standa í u.þ.b. 30 mín. Velgjið og síið blönduna frá áður en skenkt.
Óáfengt glögg: 1 líter eplasafi (eða annar safi. Einnig gott að blanda saman trönuberjasafa og eplasafa), 2 msk kryddblanda, aðeins hunang ef vill. Allt sett í pott og hitað að suðumarki. Látið standa í u.þ.b. 20 mín áður en drukkið til að kryddbragðið taki sig.

Það er vel hægt að hella upp á oftar en einu sinni með sama skammt af kryddblöndunni. Gott að bæta aðeins við af kryddblöndu ef hellt er upp á sömu blöndu oftar en tvisvar.

Kryddið er Vegan, án aukaefna, án MSG, án glúteins, án sílikon díoxíðs, án salts.

 

In stock

add_action( 'woocommerce_after_shop_loop_item', 'woocommerce_template_loop_add_to_cart', 20 );